Ný og glæsileg heimasíða Árskóla
Nú og glæsileg heimasíða Árskóla hefur litið dagsins ljós en á henni kemur fram að innra mat Árskóla hafi vakið verðskuldaða athygli.
Á vefslóðinni: http://www.eval.is/index.php sem er síða Félags matsfræðinga, er sagt frá kynningarfundi á innra mati á skólastarfi, en skólastjórnendur Árskóla kynntu þar sjálfsmat skólans á dögunum. Félag matsfræðinga valdi tvo grunnskóla, sem vakið hafa athygli fyrir innra mat á skólastarfi, til að kynna aðferðir sínar við innra mat.
Heimasíðu Árskóla má sjá hér