Nýr verkefnastjóri til Farskólans
Nýlega réði Farskólinn-Miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra, til sín verkefnastjóra með náms- og starfsráðgjöf sem sérsvið. Sandra Hilmarsdóttir var ráðin til starfsins.
Sandra er Sauðkrækingur og mun ljúka meistaranámi í náms- og starfsráðgjöf næsta haust, eins og segir á heimasíðu Farskólans.