Nýtt fjós mun rísa á Hamri

Hjónin Unnur Sævarsdóttir og Sævar Einarsson hafa fyrir hönd Hamarsbúsins sótt um byggingarleyfi fyrir nýju fjósi.

 Húsið mun verða borið upp með límtré en á steinsteyptum kjallara. Var erindi þeirra hjóna samþykkt en fjósið er að líkindum eitt af þeim fyrstu sem rís eftir að kreppa skall á landinu.

Fleiri fréttir