Ókeypis sætaferð í Hafnarfjörðinn

Sveitarfélagið Skagafjörður mun bjóða upp á fría sætaferð á morgun á leik Hauka og Tindastóls sem fram fer í Hafnarfirði. Farið verður frá Íþróttahúsinu á Sauðárkróki, að vestanverðu, kl 14:00.

Þátttakendur í sætaferðinni þurfa að skrá sig á netfangið barmahlid5@gmail.com. „Núna eru engar afsakanir teknar gildar, eins og stuðningssveitin myndi orða þetta: STÖNDUM UPP FYRIR SKAGAFJÖRÐ, STÖNDUM UPP FYRIR SKAGAFJÖRÐ,“ segir í fréttatilkynningu frá Körfuknattleiksdeild Tindastóls.

Fleiri fréttir