Óli Grétar skrifar undir við Tindastól
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
18.01.2010
kl. 08.53
Óli Grétar Óskarsson hefur skrifað undir leikmannasamning við Tindastól. Óli Grétar er markvörður sem hefur leikið alla yngri flokkana með Tindastóli.
Óli Grétar er í dag leikmaður 2.fl. og er að stíga sín fyrstu skref í marki m.fl
Fleiri fréttir
-
Frumkvöðlar á landsbyggðinni fá sviðsljósið: Startup Landið fer af stað
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Aðsendar greinar, Vestur-Húnavatnssýsla 13.08.2025 kl. 09.37 oli@feykir.isHugmynd sem fæddist við eldhúsborðið gæti orðið næsta stóra fyrirtæki. En hvernig fer maður af stað? Það er spurning sem margir sem ganga með hugmynd í maganum hafa líklega spurt sig – og svarið gæti nú leynst í nýju verkefni sem fer af stað í haust: Startup Landið, viðskiptahraðall sérstaklega ætlaður frumkvöðlum utan höfuðborgarsvæðisins.Meira -
Byggðarráð vill að ráðherra taki togveiðar á Skagafirði til skoðunar
Byggðarráð Skagafjarðar samþykkti samhljóða á fundi sínum þann 23. júlí sl. að hvetja atvinnuvegaráðherra til að taka togveiðar á Skagafirði til skoðunar og opna fyrir faglega og gagnsæja umræðu um framtíðarskipulag veiða með dragnót við Íslandsstrendur, með áherslu á verndun vistkerfa og sjálfbæra nýtingu.Meira -
Hólahátíð verður helgina 16.-17. ágúst 2025
Hin árlega Hólahátíð verður um næstu helgi en nú er bryddað upp á þeirri nýbreytni að hátíðin hefst á laugardeginum með Hólahátíð barnanna. Þar verður dagskrá fyrir börn og fjölskyldur frá kl. 14.00. Skátafélagið Eilífsbúar sér um dagskrána og verður farið í ýmsa leiki og þrautir úti, auk skógargöngu.Meira -
Arnar setti niður átta þrista gegn Póllandi
Það styttist óðum í að Evrópumótið í körfubolta skelli á og eflaust eru einhverjir hér á svæðinu sem ætla að skella sér til Póllands. Íslenska landsliðið er á fullu í undirbúningi fyrir mótið og þar stefna menn á fyrsta sigurinn á stórmóti. Fyrir nokkrum dögum lék landsliðið æfingaleik gegn Pólverjum og tapaðist leikurinn með tveimur stigum, 92-90. Þar fór Tindastólsmaðurinn Arnar Björnsson á kostum og var stigahæstur íslensku leikmannanna. Tölfræði hans í þeim leik var til fyrirmyndar.Meira -
Sigla strandsiglingar í strand?
Feykir sagði frá því um miðjan júlí að Eimskip hefði í hyggju að hætta strandsiglingum til Sauðárkróks, auk Ísafjarðar, Akureyrar og Húsavíkur, í ljósi lokunar kísilverksmiðjunnar á Bakka við Húsavík. Í kjölfar þessarar ákvörðunar Eimskips ákvað Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra á setja á laggirnar starfshóp vegna málsins. Á fundi byggðarráðs Skagafjarðar þann 23. júlí sl. var síðan samþykkt að skora á iðnaðarráðherra að „...hraða vinnu hópsins sem leiði samtal við hagaðila um möguleika strandsiglinga og geri tillögur til úrbóta.“Meira