Öllum tilboðum hafnað
feykir.is
Skagafjörður
24.02.2011
kl. 08.06
Föstudaginn 10 desember sl. voru opnuð tilboð í slátt opinna svæði í Túna- og Hlíðahverfi á Sauðárkróki. Þrjú tilboð bárust en öll það há að ákveðið var að hafna öllum tilboðum.
Tilboðin sem um ræðir voru frá Júlíusi Líndal Blönduósi, Vinnuvélum Símonar Skarphéðinssonar á Sauðárkróki og Jóhanni Rögnvaldssyni Hrauni. Öll tilboðin voru hærri en kostnaðaráætlun tæknideildar.
