Opið hús á Varmalandi í Sæmundarhlíð
Eins og undanfarin ár verður opið hús á Varmalandi í Sæmundarhlíð föstudaginn fyrir Laufskálarétt 25. september frá kl. 13-17. Þess má geta að Varmaland hlaut umhverfisviðurkenningu Sveitarfélagsins Skagafjarðar á dögunum fyrir sveitabýli með búskap.
Til sýnis og sölu verða folöld, tryppi og tamin hross.
Kaffi og kleinur í boði. Allir velkomnir.