Opið hús í Farskólanum við Faxatorg – leiðrétt dagsetning

Fyrri nemendur Farskólans.
Fyrri nemendur Farskólans.

Föstudaginn  2. október býður Farskólinn gesti velkomna á milli kl. 17:00-18:00, til að kynna sér námskeið og námsleiðir, raunfærnimat, náms- og starfsráðgjöf, fræðslusjóði stéttarfélaga og fleira. Fram kemur í Sjónhorninu í dag að opið hús sé 29. september, það mun ekki vera rétt og leiðréttist hér með.

Boðið verður upp á fría áhugasviðsgreiningu og Vilhjálmur Egilsson, rektor á Háskólans á Bifröst, kynnir Háskólagáttina sem er í boði hjá þeim.

Farskólinn kynnir:

  • Ráðgjöf og þjónustu
  • Lengri námsleiðir sem gefa einingar
  • Kynning á lengri námsleiðum eins og Félagsliðabrú, Menntastoðum, Skrifstofuskólanum og Almennum bóklegum greinum
  • Tómstunda- og matreiðslunámskeið
  • Farskólinn býður upp á fjölbreytt úrval af tómstundanámskeiðum, s.s. Orkeringu, pylsugerð, hundaþjálfun saumanámskeið, bjórgerð,  teikningu, postulínsmálun, núvitund, viskísmökkun og fl.
  • Tungumálanám
  • Kynning á tungumálanámi. Íslenska fyrir útlendinga, enska, þýska, danska og norska

Boðið veðrur upp á léttar veitingar - vöfflur og kaffi að hætti bakarans. Allir velkomnir.

Fleiri fréttir