„Orð mín slitin úr samhengi,“ segir sveitarstjóri
„Enginn stuðningur frá sveitarstjóra er sú staðreynd sem meirihluti grunnskólakennara í Skagafirði upplifði í dag,“ segir á fésbókarsíðum margra grunnskólakennara í Skagafirði eftir að fjölmennur hópur þeirra afhenti Ástu Björgu Pálmadóttur, sveitarstjóra Svf. Skagafjarðar, ályktun stjórnar Kennarasambands Norðurlands vestra um bætt kjör.
Kennarar sem þessum ummælum deildu í dag eru afar ósáttir og segja að orðrétt hafi sveitarstjóri sagt: ,,Ég get ekkert gert fyrir ykkur". Mikil umræða hefur skapast á þráðum þeirra og er mörgum ansi heitt í hamsi.
Þegar Feykir leitaði viðbragða Ástu Bjargar sagði hún að orð sín væru slitin úr samhengi. „Ég sagði að ég gæti því miður ekkert gert fyrir þau þar sem kjarasamningsumboð sveitarfélagsins væri hjá samninganefnd sveitarfélaga. Í samningi á milli sveitarfélaga og Sambands íslenskra sveitarfélaga er í gildi samkomulag um kjarasamningsumboð og hefur Samband íslenskra sveitarfélaga fullnaðarumboð til kjarasamningsgerðar fyrir Sveitarfélagið Skagafjörð sem og önnur sveitarfélög. Kjarasamningsumboðið felur í sér að sveitarfélagið skuldbindur sig til að hlíta markmiðum og stefnu sambandsins í kjaramálum og þeim kjarasamningum sem stjórn sambandsins gerir fyrir þess hönd í öllum atriðum. Kjarasvið sambandsins annast allar kjarasamningsviðræður við viðkomandi stéttarfélög, ganga frá kjarasamningi, annast útgáfu hans í samráði við viðkomandi félag, vinna að framkvæmd einstakra þátta á samningstímanum og aðstoða við framkvæmd viðkomandi kjarasamninga. Kjarasamningsumboðið er fullnaðarumboð og er sveitarfélaginu ekki heimilt að hafa afskipti af kjarasamningsgerð sem umboðið nær til. Hvorki ég né sveitarstjórn höfum leyfi til inngripa í samninga en að sjálfsögðu virði ég samningsrétt og óska þess að samningar náist sem fyrst.“
Grunnskólakennarar víða um land lögðu niður störf klukkan 13.30 í dag og gengu út. Þannig vildu þeir undirstrika kröfur sínar í yfirstandandi kjaraviðræðum þeirra við sveitarfélögin.
Uppfært: Fyrr í dag var sagt í fréttinni að Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson kennari í Árskóla hafi ritað þessi ummæli á Fésbók sinni og aðrir kennarar deilt. Rétt er að leiðrétta að kennarar deildu ekki ummælum Guðbrands Ægis, heldur birtu þeir sömu ummæli á sínum síðum. Beðist er velvirðingar á þessu og Guðbrandur Ægir sérstaklega beðinn afsökunar.