Óska eftir samstarfi við ASÍ til að bæta úr brýnum húsnæðisskorti í Skagafirði

Ráðhús Sveitarfélagsins Skagafjarðar á Sauðárkróki. Mynd/BÞ
Ráðhús Sveitarfélagsins Skagafjarðar á Sauðárkróki. Mynd/BÞ

Byggðarráð Sveitarfélagsins mun óska eftir formlegu samstarfi við ASÍ um uppbyggingu á íbúðarhúsnæði fyrir tekjulágar fjölskyldur og einstaklinga. Þetta kemur fram í fundargerð Byggðarráðs frá því í gær.  

„Í ljósi nýlegrar viljayfirlýsingar Alþýðusambands Íslands og Reykjavíkurborgar um uppbyggingu á íbúðarhúsnæði fyrir tekjulágar fjölskyldur og einstaklinga á næstu fjórum árum, samþykkir byggðarráð að óska eftir formlegu samstarfi við ASÍ á sama grundvelli til að bæta úr brýnum húsnæðisskorti í Sveitarfélaginu Skagafirði,“ segir í fundargerð. 

Loks segist Byggðarráð fagna þessu framtaki ASÍ og er sveitarstjóra falið að fylgja málinu eftir af hálfu ráðsins.

Fleiri fréttir