Óska eftir viðræðum við veitunefnd
Á fundi veitunefndar Sveitarfélagsins Skagafjarðar í byrjun janúar var lagt fram erindi frá land- og húseigendum í utanverðu Hegranesi. Í erindinu var óskað eftir viðræðum við veitunefnd vegna framkvæmdaáætlunar Skagafjarðarveitna.
Veitunefnd mun boða fulltrúa hópsins á fund þegar vinnu við úttekt á þeim svæðum sem ekki eru inn í núgildandi framkvæmdaáætlun er lokið. Vinna við úttektina er á lokastigum.