Óvissa með framtíð Háholts sem meðferðarheimili
Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu meðferðarheimilisins Háholts í Skagafirði en uppi eru áform um að loka heimilinu frá og með næsta hausti. Fyrirhugað er að færa starfsemina á höfuðborgarsvæðið og áætlað að veita um 500 milljónum króna í nýbyggingu undir starfsemina.
Á fundi Byggðarráðs sem haldinn var í gær kemur fram að það telji vinnubrögðin undarleg af hálfu ráðuneytis og Barnaverndarstofu að aldrei hafi verið rætt við forsvarsmenn sveitarfélagsins í aðdraganda þessarar ákvörðunar en Sveitarfélagið Skagafjörður er eigandi húsnæðis sem hýsir starfsemi Háholts. Sveitarfélagið byggði húsið sérstaklega undir starfsemina á sínum tíma og fór í miklar endurbætur á húsnæðinu árið 2014 til að aðlaga það betur að starfseminni.
Samningur sveitarfélagsins og barnaverndarstofu um húsnæðið undir meðferðarheimilið rennur út í ágúst á næsta ári og segir í fundargerð að Sveitarfélagið sé tilbúið að þróa áfram þjónustuna í samvinnu við ráðuneytið og Barnaverndarstofu.
Byggðaráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar óskar eftir því að fá fund með velferðarráðherra til að ræða framtíð meðferðarheimilisins Háholts í Skagafirði. Er það ósk byggðarráðs að af þeim fundi geti orðið sem fyrst.