Pungar og pelastikk leggja frá landi í Höfðaborg í kvöld

Sæunn Hrönn Jóhannesdóttir og Sigmundur Jóhannesson í gervum sínum í Pungum og pelastikki. Aðsend mynd.
Sæunn Hrönn Jóhannesdóttir og Sigmundur Jóhannesson í gervum sínum í Pungum og pelastikki. Aðsend mynd.
Áhugamannafélagið Frásaga sýnir hugverkið Pungar og pelastikk; raunir trillukarla í Höfðaborg í kvöld, laugardagskvöldið 31. mars. Sýningarnar eru tvær, sú fyrri klukkan 20:00 og 22:30. Löngu er uppselt á fyrri sýninguna en enn eru örfá sæti laus á þá síðari.
 
Óskin skríður frá landi ásamt litríkri áhöfn Björns skipstjóra. Ferðinni er heitið á grásleppuveiðar á Skagafirði. Ragga og Gaui standa vaktina ásamt Birni sem er við það að bugast. Ráðhildur veitir áhöfninni bæði aðhald og tiltal. Þetta veiðir sig nú ekki sjálft! En ýmislegt gengur á í þessum róðri og maður veit aldrei hvað kemur upp úr kafinu.....já eða hafinu.
 

Verkið er samið af Jóhönnu Sveinbjörgu og Margréti Berglindi og er að þeirra sögn upplogin dægursaga í bland við þekkta sjómannaslagara sem fluttir eru af hljómsveit skipaðri kunnum hljóðfæraleikurum úr Skagafirði. Sex leikarar fara með hlutverk í sýningunni sem frumsýnd var í Miðgarði í október sl. haust og hlaut frábærar viðtökur.

Miðasölusíminn er 893 0220 og er miðaverð kr. 3.500,-

Í tilefni frumsýningarinnar í október birtist viðtal við höfundana í Feyki.

 

 

Fleiri fréttir