Rækjuvinnslu Fisk Seafood í Grundarfirði lokað

Tekin hefur verið ákvörðun um að loka rækjuvinnslu Fisk Seafood í Grundarfirði. Starfsfólki  verksmiðjunnar var tilkynnt um niðurstöðuna í gær á fundi og taka uppsagnirnar gildi um næstu mánaðarmót. Í fréttatilkynningu frá FISK Seafood kemur fram að veiðar og vinnsla rækju hafi átt erfitt uppdráttar hérlendis á undanförnum árum og er ákvörðunin tekin í ljósi langvarandi tapreksturs í Grundarfirði sem ekki virðist gerlegt að vinda ofan af við núverandi aðstæður.

Alls fengu 19 manns uppsagnarbréf í kjölfar fundarins í gær en tveimur var boðið að vinna áfram að frágangi í verksmiðjunni og undirbúningi sölu tækja og búnaðar á allra næstu mánuðum.

Í fréttatilkynningunni kemur einnig fram að FISK Seafood harmar þessar málalyktir en vekur athygli á að rekstrarumhverfi veiða og vinnslu rækju á Íslandi hefur breyst verulega á undanförnum árum með óhjákvæmilegum samdráttaráhrifum.  „Það er sárt að horfast í augu við þennan veruleika. Rækjuveiðar við Íslandsstrendur eru orðnar innan við 10% af því sem var þegar best lét og hráefnið, sem stöðugt hækkar í verði,  kemur nú orðið að langmestu leyti erlendis frá. Gengi íslensku krónunnar, stóraukinn launakostnaður og aðrar innlendar kostnaðarhækkanir ráða einnig miklu um versnandi afkomu og við núverandi aðstæður er leiðin út úr vandanum því miður ekki einungis vandfundin heldur væntanlega ófær,“ segir Friðbjörn Ásbjörnsson, aðstoðarframkvæmdarstjóri FISK Seafood ehf.

/Fréttatilkynnning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir