Refum fjölgar og greni finnast nær byggð
Refa- og minkaveiðar voru til umræðu á fundi Landbúnaðarnefndar Svf. Skagafjarðar sl. föstudag og var farið yfir veiðitölur fyrir árið 2012 á fundinum en alls hafa 339 refir veiðst á árinu og 133 minkar.
Samkvæmt fundargerð hefur minkaveiðin farið minnkandi undarfarin ár en refaveiðin heldur verið að aukast. Nefndarmenn eru sammála um að refur sé að fjölga sér og ný greni eru að finnast nær byggð en áður hefur verið.
Varðandi fjárhagsáætlun þá lítur út fyrir að kostnaður við málaflokkinn fari um 3-400 þúsund fram úr fjárhagsáætlun ársins.
„Mjög nauðsynlegt að fá aukið fjármagn í málaflokkinn. Áskorun beint til ríkisins að auka aftur fjármagn til málaflokksins en undanfarin ár hefur verið stöðugt minna fjármagn frá ríkinu í þessa veiði og alls ekkert til refaveiðinnar,“ segir í fundargerð.
Sveitarstjóra var falið að koma á framfæri við fjárlaganefnd Alþingis fjárþörf málaflokksins.
