Rjúpu fjölgar á Norðvesturlandi

Rjúpa, ungur kvenfugl, í Aðaldal, 3. maí 2018. Mynd: Ólafur K. Nielsen
Rjúpa, ungur kvenfugl, í Aðaldal, 3. maí 2018. Mynd: Ólafur K. Nielsen

Mikil fjölgun rjúpna var alls staðar nema á Suðurlandi, Suðausturlandi og Austurlandi, samkvæmt niðurstöðum rjúpnatalningar Náttúrufræðistofnunar Íslands vorið 2018. Miðað við ástand stofnsins frá síðustu aldamótum er rjúpnafjöldinn í ár í meðallagi eða yfir meðallagi í öllum landshlutum.

Á vef Náttúrufræðistofnunarinnar kemur fram að rjúpu fjölgaði víðast hvar á landinu milli áranna 2017 og 2018 og er var mjög áberandi á Vestfjörðum og Norðvesturlandi. Kyrrstaða eða fækkun var á Suðurlandi, Suðausturlandi og Austurlandi. Í Þingeyjarsýslum var þéttleiki karra í vor sá þriðji hæsti frá því að talningar hófust árið 1981.

Mat á veiðiþoli rjúpnastofnsins og nánari greining á ástæðum fjölgunar munu liggja fyrir í ágúst í kjölfar mælinga á afföllum rjúpna 2017 til 2018 og varpárangri í sumar.

Fleiri fréttir