Rocky Horror í Bifröst
Nemendur Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra hafa undanfarnar vikur æft af krafti söngleikinn Rocky Horror sem frumsýndur verður miðvikudaginn 16. nóvember klukkan 20:00. Leikstjóri er Guðbrandur Ægir og aðstoðarleikstjóri er Heiða Jonna.
Í Rocky Horror segir frá tveimur fyrirmyndar unglingum, þeim Brad og Janet sem verða fyrir því óláni að bíllinn þeirra bilar úti á þjóðvegi en hjálpin gæti leynst í eina húsinu í nágrenninu. Það er kastali Dr. Frankenstein og reynist húsbóndinn vera Dr. Frank N Furter sem kemur frá plánetunni Transilvaníu.
Dr. Frank N Furter er niðursokkinn í vísindatilraun þar sem hann freistast til að skapa hinn fullkomna mann; Rocky. Eins og vænta má lendir unga siðsama parið í undarlegu og stórhættulegu ævintýri.
Rocky Horror er sívinsæll söngleikur sem sýndur hefur verið um víða veröld en Richard O’Brien skrifaði verkið árið 1973. Það var frumsýnt 19. júní sama ár í London og gekk sýningin í langan tíma. Árið 1975 var svo gerð kvikmynd eftir söngleiknum.
Sýningar verða sem hér segir:
Frumsýnt miðvikudaginn 16. nóvember klukkan 20:00
2. sýning fimmtudaginn 17. nóvember klukkan 20:00
3. sýning laugardaginn 19. nóvember klukkan 20:00
4. sýning sunnudaginn 20. nóvember klukkan 20:00
5. sýning þriðjudaginn 22. nóvember klukkan 20:00
6. sýning miðvikudaginn 23. nóvember klukkan 20:00
Hægt er að panta miða þriðjudaginn 15. nóvember á milli 16-18 og svo alla sýningardaga á milli 16-18 í síma 455-8070
12 ára og yngri skulu koma í fylgd með fullorðnum.