Röskun á skólahaldi vegna veðurs

Appelsínugul viðvörun er í gangi fyrir Norðurland vestra fram yfir hádegi. Mynd: Skjáskot af vef Veðurstofunnar.
Appelsínugul viðvörun er í gangi fyrir Norðurland vestra fram yfir hádegi. Mynd: Skjáskot af vef Veðurstofunnar.

Talsvert hvassviðri gengur nú yfir landið en reikna má með að það verði gengið niður um eða upp úr hádeginu. Til að mynda fór vindstyrkur við Miðsitju í Blönduhlíð í 48 m/s í hviðum á áttunda tímanum í morgun. Vindmælir við Stafá virðist hafa gefið sig í rokinu og sýnir nú engar tölur.

Vegna veðurs og hálku fellur skólahald niður í Grunnskólanum austan Vatna á Sólgörðum, Hofsósi og á Hólum í dag, skólabílar frá Varmahlíðarskóla aka ekki Blönduhlíð, Lýtingsstaðahrepp og Skörð en heimakstur verður í lok skóladags. Í Húnavallaskóla, bæði leik- og grunnskóla, fellur skólahald niður og skólabílar Grunnskóla Húnaþings vestra aka ekki í fyrrum Bæjarhreppi, um vestanverðan Miðfjörð og vestanvert Vatnsnes.

Fleiri fréttir