Sambandslaust hjá Gagnaveitunni í nótt
Vegna uppfærslu vélbúnaðar og breytingum á tengingum á ljósleiðaraneti Gagnaveitu Skagafjarðar verður sambandslaust við helstu kerfi Gagnaveitu aðfaranótt fimmtudags.
Við þetta myndast truflanir á netsamböndum Fjölnets og Vodafone og einnig síma og sjónvarpsþjónustu hjá Vodafone.
Sambandsleysið varir frá kl. 23:00 í kvöld til 04:00 í nótt.
Beðist er velvirðingar á þessum óþægindum.