Sauðfé flest í Húnaþingi vestra

Kort yfir dreifingu sauðfjár á landinu í nóvember 2015. Mynd: Byggðastofnun.
Kort yfir dreifingu sauðfjár á landinu í nóvember 2015. Mynd: Byggðastofnun.

Byggðastofnun tók nýlega saman upplýsingar um dreifingu sauðfjárbúa og frístundabúskapar á Íslandi. Var þetta gert vegna sauðfjárhluta búvörusamnings ríkisins og Bændasamtakanna. Flest bú með yfir 600 fjár eru á Norðurlandi vestra og fé er flest í Húnaþingi vestra en næst flest í Skagafirði.

Í skýrslunni kemur fram að flest sauðfé er í Húnaþingi vestra í nóvember 2015, eða 37.716. Sveitarfélagið með næstflest fé er Skagafjörður með 34.632. Þá kemur fram í skýrslunni að sauðfjárbú á landinu eru 2498 og heildarfjöldi sauðfjár 470.678, miðað við nóvember 2015. Af þessum tæplega 2500 sauðfjárbúum voru 108 með fleiri en 600 kindur eða 4,3% búanna. Ef horft er á dreifingu milli landshluta voru flest þessara stærstu búa á Norðurlandi vestra, eða 35. Bú með 400-599 kindur voru 284 eða 11,4%. Í þeim stærðarflokki eru sömuleiðis flest á Norðurlandi vestra eða 75 bú.

Þegar litið er til þeirra búa sem eru með 200–399 kindur voru það 519  framleiðendur, eða  20,8%. Flestir þeirra voru á Suðurlandi. Þeir aðilar sem voru með færri en 200 kindur voru 1.587 eða 63,5% sauðfjárbúa. 

Fleiri fréttir