Sigmundur Skúlason semur til tveggja ára
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
27.10.2009
kl. 09.21
Um síðustu helgi skrifaði Sigmundur Birgir Skúlason knattspyrnumaður undir tveggja ára samning við Tindastól.
Sigmundur eða Simmi eins og hann er jafnan kallaður, hefur nær allan sinn feril leikið með Tindastóli og á að baki 116 leiki með m.fl. Hann er nú starfandi yngri flokka þjálfari hjá félaginu og er að gera fína hluti þar.
/Tindastóll.is
Fleiri fréttir
-
„Þar sem ég er örvhent var kúnst að kenna mér“
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Lokað efni, Handverk 17.08.2025 kl. 14.16 klara@nyprent.isHólmfríður Dóra Sigurðardóttir býr í Vatnsdalshólum í Húnabyggð og þar fæddist hún en hefur búið á Vatnsnesi, Hvammstanga og Hvolsvelli, flutti svo aftur heim árið 2016. Dóra eins og hún er yfirleitt kölluð er ekkja og á þrjú börn og eitt barnabarn. Dóra rekur gallerý og vinnustofu á bænum sínum þar sem hún selur list sína og handverk eins og handmáluð kerti, málverk og kort. Dóra er einnig með leiðsögugöngur á landareign sinni. Nýjasta nýtt er ,,Myrkurgæði" þar sem fer saman að horfa á himininn og hlusta á sögur.Meira -
Gyros og nachos í Air fryer | Matgæðingur Feykis
Skagfirðingurinn Bergrún Sóla Áskelsdóttir er matgæðingur vikunnar í tbl. 16 en hún er búsett í Kópavogi og er í sambúð með Sigvalda Helga Gunnarssyni frá Löngumýri. Bergrún starfar á ferðaskrifstofu en Sigvaldi vinnur í Tækniskólanum og þess á milli hafa þau mjög gaman af tónlist og ferðalögum. Þau hafa ferðast töluvert og vita fátt skemmtilegra en að smakka framandi mat í nýjum löndum.Meira -
Framkvæmdir við nýjan golfskála hefjast senn
Framkvæmdir hefjast senn við nýjan golfskála á Hlíðarendavelli Það standa fyrir dyrum framkvæmdir á svæði Golfklúbbs Skagafjarðar en nú í lok ágúst verður hafist handa við að fjarlægja golfskálann og í framhaldinu verður ráðist í jarðvegsvinnu og uppsetningu á nýjum og stærri golfskála. Sá verður um 230 fermetrar og því talsvert meira en helmingi stærri en sá gamli.Meira -
Grenvíkingar fengu að líta 18 spjöld en fóru heim með stigin
Topplið Magna frá Grenivík mætti á Sauðárkróksvöll í gærkvöldi þar sem Tindastólsmenn biðu þeirra. Það fór svo að gestirnir hirtu öll stigin með marki á fimmtu mínútu í uppbótartíma en þá voru aðeins orðnir eftir nítján leikmenn á vellinum. Miðað við leikskýrslu hlýtur dómari leiksins að vera með strengi í spjaldahandleggnum eftir leikinn því hann sýndi spjöldin sín tvö alls 26 sinnum í leiknum – þar af gestunum 18 sinnum! Lokatölur 0-1.Meira -
Lífræn ræktun í Lýtó
Í Breiðargerði í fyrrum Lýtingsstaðahreppi býr Elínborg Erla Ásgeirsdóttir og stundar þar lífræna grænmetisræktun. Einnig er hún í býflugnarækt svo það er nóg við að vera. Elínborg hefur vakið athygli fyrir þessa starfsemi og er hún formaður í VOR, sem er félag framleiðenda í lífrænum búskap og fullvinnslu. Blaðamanni Feykis lék forvitni á að fræðast nánar um málið. Var þá bara eitt að gera en það var að fara í heimsókn í Breiðargerði.Meira