Sigrum streituna - fyrirlestur í Árskóla

Heilsueflandi samfélag í Skagafirði býður á morgun, miðvikudaginn 30. október, upp á fyrirlestur Sölva Tryggvasonar, Sigrum streituna - grunnatriði góðrar heilsu. Fyrirlesturinn verður haldinn í sal Árskóla og hefst hann klukkan 16:30. 

Í fyrirlestrinum fjallar Sölvi um lykilatriði hvað varðar næringu, hreyfingu, leiðir til að bæta svefn, heilastarfsemi og draga úr bólgum og ójafnvægi í líkamskerfinu.

Á vef Sveitarfélagsins Skagafjarðar segir um Sölva Tryyggvason:
„Sölvi Tryggvason gaf nýverið út bókina: Á Eigin Skinni, sem er afrakstur áratugsvegferðar hans um allt sem snýr að heilsu. Eftir að hafa sjálfur misst heilsuna neyddist Sölvi til að gerast sérfræðingur í heilsu og hefur á undanförnum árum lært af framúrskarandi fólki um allan heim, auk þess að gera endalaust af tilraunum á sjálfum sér þegar kemur að kælingu, föstum, næringu, hreyfingu, bætiefnum og fleiru og fleiru."

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir