Sjálfstæðisflokkur með þrjá og Framsókn með tvo
Rétt fyrir klukkan tvö var búið að telja 5000 atkvæði í Norðvesturkjördæmi, eða um fjórðung þess fjölda sem er á kjörskrá. Samkvæmt þeim fengi Sjálfstæðisflokkurinn þrjá menn kjörna, Framsóknarflokkur tvo, Píratar einn, Samfylking einn, og VG einn. Tölur um kjörsókn liggja ekki fyrir.
Samkvæmt nýjustu tölum yrðu þingmenn Norðvesturkjördæmis eftirfarandi:
Eva Pandóra Baldursdóttir (P)
Elsa Lára Arnardóttir (B)
Guðjón Brjánsson (S)
Gunnar Bragi Sveinsson (B)
Haraldur Benediktsson (D)
Lilja Rafney Magnúsdóttir (V)
Teitur Björn Einarsson (D)
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir (D)
Hlutfallslegt fylgi samkvæmt nýjustu tölum í Norðvestur eru eftirfarandi:
Björt framtíð: 4,5%
Framsókn: 18,8%
Viðreisn: 6,1%
Sjálfstæðisflokkur 29,9%
Flokkur fólksins 2,5%
Píratar 10,5%
Samfylkingin 8.3%
Dögun 1,6%
VG 14.5%