Sjómenn í verkfalli fram á nýtt ár

Bátar bundnir við bryggju á Sauðárkróki. Mynd: PF.
Bátar bundnir við bryggju á Sauðárkróki. Mynd: PF.

Sjómannaverkfall sem hófst þann 14. desember sl. stendur enn yfir og ljóst að staðan er snúin. Fréttir herma að  nokkur spölur sé í land hvað samninga snertir en sjómenn vilja ekki þann samning sem lagður hefur verið fram. Fundað var í morgun á milli deiluaðila sem stóð stutt yfir en boðað hefur verið til nýs fundar eftir áramót.

Sjómaður á Sauðárkróki sem Feykir hafði samband við sagði að óánægjan snúi aðallega að þátttöku þeirra í olíukaupum og nýsmíðagjaldi skipa sem flókið væri að útskýra. Þá hefur ekki náðist samkomulag um fiskverð enda ekki gott að henda reiður á hvert rétt aflaverð skuli vera. Verkfallið mun hafa mjög mikil og víðtæk áhrif t.d. á landvinnslur og útflutning.

Jón E. Friðriksson framkvæmdastjóri FISK Seafood segir verkfallið hafa slæm áhrif á fyrirtækið, þar sem nánast allar deildir þess stöðvist í vikunni fyrir jólin. Tekjuskerðing fyrirtækisins er eitthvað á bilinu 650 – 750 milljónir fyrir hvern mánuð sem verkfallið stendur. Hann segir að um 85 sjómenn séu í verkfalli hjá FISK en aðrir sjómenn hjá fyrirtækinu sem verkfallið hefur áhrif á séu rúmlega 30. „Landvinnslan hér á Sauðárkróki stöðvast í lok þessarar viku vegna hráefnisskorts og því hefur þetta verkfall bein áhrif á þá tæplega 100 starfsmenn sem þar vinna. Launalega tekur við svokölluð kauptrygging þ.e. fólk heldur sínum launum fyrir dagvinnuna. Það segir sig sjálft að greiðslur vegna yfirvinnu koma ekki til við slíkar aðstæður og þá falla einnig niður bónusgreiðslur, sem taka m.a. mið af framleiðslumagni afurða,“ segir Jón Eðvald aðspurður um hvernig verkfallið hafi áhrif á landvinnslufólk. 

Fleiri fréttir