Skagafjörður keppir í 8-liða úrslitum í Útsvars
Lið Skagafjarðar mætir harðsnúnu liði Akureyrar í 8-liða úrslitum spurningaþáttarins Útsvars í Ríkissjónvarpinu í kvöld. Liðið stóð sig með miklum sóma í annarri umferð og í kvöld er örugglega spennandi og skemmtileg keppni í vændum.
Liðið skipa Guðrún Rögnvaldardóttir, Guðný Zöega og Vilhjálmur Egilsson. Skagfirðingar sunnan Heiða eru hvattir til að koma og fylgjast með í sjónvarpssal og hvetja liðið til dáða, mæting er um kl. 19:45.