Skálmöld á sögudegi Sturlungaslóðar 15. ágúst
Hinn árlegi sögudagar félagsins á Sturlungaslóð í Skagafirði verður laugardaginn 15. ágúst. Að þessu sinni verður gestum boðið að koma á Örlygsstaði kl 13 þar sem sagnamaðurinn Sigurður Hansen mun verða á staðnum og segja frá atburðum úr Sturlungu.
Ásbirningablótið verður í Kakalaskálanum í Kringlumýri og hefst kl 19. Það verður með öðru sniði í ár en venjulega því nú mætir Einar Kárason rithöfundur með leikþáttinn Skálmöld ásamt Júlíu Margréti dóttur sinni. Samhliða leikþættinum verður boðið upp á léttar veitingar að hætti miðaldamanna.
Miðaverð er 5.000 kr og panta þarf fyrir kl 17 föstudaginn 14. ágúst á Hótel Varmahlíð í síma 453 8170