Skiptifatamarkaður Rauða krossins
Rauði kross Skagafjarðar ætlar að vera með skiptifatamarkað fyrir allan fatnað barna á leikskólaaldri 2.-4. des.
Foreldrar eru hvattir til að koma með notuð föt og skipta yfir í aðrar stærðir, öðruvísi fatnað eða skó. Þarna verður hægt að skipta yfir í hlý föt, spariföt, buxur, peysur, skó og fleira.
Markaðurinn verður staðsettur í Rauðakrosshúsinu við Aðalgötu 10b á Sauðárkróki.