Skipulagslýsing vegna deiliskipulags fyrir Flæðar og íþróttasvæði samþykkt
Skipulagslýsing vegna fyrirhugaðs deiliskipulags fyrir Flæðar og íþróttasvæði við Skagfirðingabraut á Sauðárkróki var samþykkt á fundi Sveitarstjórnar sveitarfélagsins Skagafjarðar í gær. Skipulagslýsingin er unnin af Baldri Ó. Svavarssyni hjá Úti og Inni sf. arkitektum, dagsett 26. maí 2016.
Á fundinum tók Bjarni Jónsson til máls og óskaði bókað:
„Framundan er deiliskipulagsferli á svæði sem tekur yfir okkar glæsilega íþróttasvæði, Sundlaug Sauðárkróks og Flæðarnar í hjarta bæjarins. Í skipulagslýsingu er gert ráð fyrir að hótel rísi á Flæðunum. Er hér gerður fyrirvari við þá staðsetningu. Bygging nýs hótels á Sauðárkróki yrði burtséð frá staðsetningu, hins vegar mikil lyftistöng fyrir uppbyggingu ferðaþjónustu og atvinnulíf á svæðinu. Framundan er deiliskipulagsferli á þeim reit sem sótt er um undir hótelið. Þar gefst íbúum tækifæri til að koma að athugasemdum og tillögum áður en endanlegar ákvarðanir verða teknar um mögulegar útfærslur eða staðsetningu á slíku hóteli ef af verður. Skiptar skoðanir eru um staðsetninguna og hvernig Flæðarnar njóti sín best í framtíðinni og má þann áherslumun eins og víðar finna í sveitarstjórnarhóp VG og óháðra.“
Tillaga frá skipulags- og byggingarnefnd um að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa og kynna skipulagslýsinguna var borin undir atkvæði og samþykkt með níu atkvæðum.