„Skráningar fara vel af stað“

Námsvísir Farskólans kom út á dögunum og eru skráningar á námskeið nú komnar á fullt. Mynd: Farskólinn.
Námsvísir Farskólans kom út á dögunum og eru skráningar á námskeið nú komnar á fullt. Mynd: Farskólinn.

Námsvísir Farskólans-Miðstöðvar símenntunar á Norðurlandi vestra kom út í síðustu viku. Námsvísinum er dreift á öll heimili á svæðinu og gefur hann yfirlit yfir námskeið Farskólans á haustönn. Að sögn Halldórs B. Gunnlaugssonar verkefnastjóra eru skráningar komnar á fullt og fara vel af stað. „Við viljum hvetja fólk til að skrá sig hið fyrsta svo það missi ekki af, því að það er orðið fullt í sum námskeiðin og önnur að fyllast. Námskeiðin eru fjölbreytt að vanda og að þessu sinni reyndum við að hafa öll námskeið tímasett þannig að fólk geti tekið daginn frá og vonum við að það gefist vel,“ segir Halldór.

Námsvísir er með hefðbundnu sniði, bland af skemmtilegu og gagnlegu og má þar nefna að Farskólinn ætlar, í samstarfi við SSNV, að bjóða upp á fjögur námskeið. „Þessi námskeið eru ætluð fyrir atvinnulífið, ekki síst frumkvöðla eða fólk sem langar að fara að gera eitthvað nýtt, t.d. í ferðaþjónustu, handverki eða matvælavinnslu.“ Að sögn Halldórs eru þessi námskeið þátttakendum að kostnaðarlausu en mikilvægt er að fólk skrái sig. Námskeiðin sem um ræðir eru í fyrsta lagi boðmiðlun eða markaðsleg samskipti, þar sem fjallað er um hvernig maður kemur skilaboðum út til fólks. Í öðru lagi markaðssetning, sem er framhald af námskeiði sem haldið var í vor og naut mikilla vinsælda. Þá verður fjallað um merki og vörumerki í markaðssetningu fyrirtækja. Loks verður fjallað um hvernig á að gera markaðsáætlun. „Þetta er opið öllum, bæði þeim sem eru með hugmyndir og þeim sem eru komnir í rekstur,“ segir Halldór að lokum. /KSE

Fleiri fréttir