Skyndihjálparnámskeið á Sauðárkróki
Rauði krossinn í Skagafirði heldur 12 tíma námskeið í almennri skyndihjálp á fjórum kvöldum dagana 12., 15., 19. og 21. maí 2015 kl. 19:30-22:30 alla dagana í Rauða kross húsinu Aðalgötu 10.b. Þátttakendur þurfa að vera 14 ára eða eldri.
Markmiðið er að auka þekkingu og færni þátttakenda í að beita á öruggan hátt einföldum aðferðum í skyndihjálp. Að auka færni í að meta einkenni algengra sjúkdóma og áverka. Innifalið í námskeiðsgjaldi er bókin "Skyndihjálp og endurlífgun".
Námskeiðið er metið til eininga í flestum framhaldsskólum, til aukinna ökuréttinda og víðar. Til öryggis er þeim sem þurfa skyndihjálparþekkingu sem hluta af starfsréttindum eða námi ráðlagt að leita staðfestingar hjá viðkomandi menntastofnun hvort námskeiðið sé tekið gilt. Einnig skal vakin athygli á því að þeir sem hafa í hyggju að starfa sem sundlaugarverðir þurfa að vera með svona námskeið til þess að meiga sækja 8 tíma sérhæft námskeið í skyndihjálp og björgun.
Þátttökugjald er 12.000 krónur. Skráning og greiðsla á greiðslusíðu Valitors.
ATH! Þátttökugjald er ekki endurgreitt ef styttra en þrír dagar eru í námskeið og læknisvottorð liggur ekki fyrir. Eftir að námskeiðið er hafið er þátttökugjaldið ekki endurgreitt. Ath. ennfremur að starfandi sjálfboðaliðar Rauða krossins í Skagafirði greiða ekki þátttökugjald.
Nánari upplýsingar í síma 461 2374, ingibjorgh@redcross.is og á heimasíðu Rauða krossins rki.is
/fréttatilkynning