Sóknaráætlun Norðurlands vestra
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra auglýsir að nú sé opið fyrir umsóknir um styrki til menningarstarfs, atvinnuþróunar og nýsköpunar. Umsóknarfrestur er til og með 17. apríl nk.
Á vef SSNV segir að þann 10. febrúar sl. var skrifað undir samning milli Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) og ríkisins um Sóknaráætlun 2015-2019. Markmið Sóknaráætlunar er m.a. að stuðla að jákvæðri samfélagsþróun, treysta stoðir menningar og auka samkeppnishæfni landshlutans og landsins alls.
Einn hluti Sóknaráætlunarinnar er stofnun svokallaðs Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra sem kemur í stað þeirra vaxtar- og menningarsamninga sem verið hafa í gangi á undanförnum árum. Uppbyggingarsjóðurinn er samkeppnissjóður og því þarf að sækja um styrki í sjóðinn.
Nánari upplýsingar má finna á vef SSNV.