Starf íþróttafulltrúa auglýst á næstu dögum
feykir.is
Skagafjörður
27.10.2010
kl. 11.36
Starf íþróttafulltrúa Skagafjarðar verður auglýst laust til umsóknar á næstu dögum en að líkindum verður staðan bara auglýst til eins árs til þess að byrja með þar sem Sævar Pétursson, fráfarandi íþróttafulltrúi, hefur einungis sótt um árs frí frá störfum.
Sævar mun þann 1. desember næst komandi taka við starfi ráðgjafa í atvinnumálum hjá Akureyrarbæ.
Fleiri fréttir
-
Menningarhús er góð fjárfesting | Frá stjórn Leikfélags Sauðárkróks
Á Sauðárkróki er stunduð öflug og lifandi leikhúsmenning þrátt fyrir að aðstaðan til að rækta hana að fullu hefur ekki haldið í við metnaðinn. Það er löngu tímabært að horfast í augu við þá staðreynd að hér á Króknum vantar menningarhús sem getur raunverulega sinnt leiksýningum, tónleikum og ýmsu öðru viðburðahaldi, hvert svo sem það er. Nú styttist í að ráðist verði í byggingu nýs menningarhúss við Safnahúsið á Flæðunum og er það fagnaðarefni.Meira -
Rabb-a-babb 247: Víðir í Stóradal
Jakob Víðir Kristjánsson sem er sjaldnast kallaður Jakob, alltaf Víðir, er fæddur á því herrans ári 1983 og sleit barnsskónum í Stóradal í Svínavatnshreppi hinum forna og þar er hann að slíta fullorðinsskónum líka. Víðir er faðir tveggja barna allavega, annað er óljóst eins og hann sjálfur kemst að orði. Víðir er sonur Kristjáns Jónssonar og Margrétar Rósu Jónsdóttur. Víðir starfar sem sauðfjárbóndi aðallega en fer líka stundum á hestbak annaðhvort af eigin frumkvæði eða gegn greiðslu.Meira -
Notar ennþá fermingarskóna sína
Halla Sigríður Ragnarsdóttir er frá Sauðárkróki en býr núna í Reykjavík með dóttur sinni sem er eins og hálfs árs og heitir Máney Anna. Í Reykjavík stundar hún nám við kynjafræði en hún er einnig hjúkrunarfræðingur að mennt.Meira -
Heimir nýbúinn fyrir sunnan. Næsta stopp, Miðgarður.
Karlakórinn Heimir hélt velheppnaða tónleika í Háteigskirkju á laugardaginn var. Áætlaðir höfðu verið tónleikar á Akranesi á föstudagskvöldið en þeim varð að aflýsa vegna veðurs og ófærðar. Í Háteigskirkju mættu um 250 manns svo hún var nánast full. Ef marka má færslur á facebooksíðu kórsins voru tónleikagestir vel sáttir. Hér eru til gamans nokkur ummæli:Meira -
Tindastólsmenn lögðu ÍR í fjörugum og spennandi fyrsta leik
Úrslitakeppnin í Bónus deild karla í körfunni er farin af stað og í gærkvöldi lauk fyrstu umferðinni. Það er fátt sem jafnast á við dramatíkina og tilþrifin í körfunni og þessi árstími einmitt í uppáhaldi hjá mörgum vegna þess. Lið Tindastóls og ÍR hófu sitt einvígi í Síkinu í gærkvöldi og var boðið upp á frábæran leik; mikinn hraða, spennu og frábæra stemningu í Síkinu en hátt í 900 manns sóttu leikinn. ÍR-liðið gaf hvergi eftir en varð á endanum að sætta sig við tap því Stólarnir reyndust sterkari. Lokatölur 108-99 og Tindastólsmenn leiða því einvígið 1-0.Meira
