Stefnir í fínt brennuveður

Fjórar brennur eru fyrirhugaðar í Skagafirði um áramótin, á Hofsósi, Hólum, Sauðárkróki og Varmahlíð. Það eru björgunarsveitirnar sem hafa veg og vanda af brennunum og flugeldasýningunum eins og áður. Kveikt verður í öllum áramótabrennunum á sama tíma kl. 20:30 og flugeldasýningarnar hefjast kl 21. Á Hofsósi er brennan við Móhól og á Hólum sunnan við Víðines. Á Sauðárkróki er brennan norðan við hús Vegagerðarinnar og í Varmahlíð við afleggjarann upp í Efri-byggð.
Á Blönduósi verður brenna á Efraholti sunnan Blönduóss sem Björgunarfélagið Blanda sér um og hefst klukkan 20:30.
Á Hvammstanga verður brennan í boði Björgunarsveitarinnar Húnar á Vallhöfða sunnan bæjarins og hefst klukkan 21:00.
Slysavarnadeildin á Skagaströnd sér um brennu Skagstrendinga sem verður við Vetrarbraut/Ásveg og hefst klukkan 21:00.
Ungmennafélagið Dagsbrún mun sjá um brennu við Gilstaði í Hrútafirði á þrettándanum og hefst hún klukkan 18:00.
Samkvæmt Veðurstofu Íslands verður suðvestan 8-13 m/s og él á Norðurlandi vestra í dag, en gengur í norðan 8-15 með snjókomu eftir hádegi. Heldur hvassara verður svo seint í kvöld og í nótt.
Á morgun, gamlársdag, mun lægja smám saman og létta til, en suðvestan 5-10 og dálítil él annað kvöld. Frost 1 til 8 stig, kaldast í innsveitum.
Á sunnudag (nýársdagur): Vestan 10-18 m/s og dálitlar skúrir eða él, hvassast á annesjum N-til, en hægara og léttskýjað A-lands. Hlýnar og hiti 0 til 5 stig síðdegis.