Stefnir í fjöruga verslunarmannahelgi á Vindheimamelum
Skagfirsku hestamannafélögin og Gullhylur ætla að halda stórmót um Verslunarmannahelgina. Um er að ræða opið mót og keppt verður í A og B fl. ungmenna, unglinga og barnaflokkum.
Einnig verður keppt í tölti og skeiði og jafnvel fleiri greinum en það skýrist þegar nær dregur.
Ætlunin er að endurvekja gömlu góðu stemminguna á Vindheimamelum um Verslunarmannahelgina.
Aðstaðan frábær fyrir hestafólk að koma og eyða helginni í Skagafirði og allt í toppstandi á Melunum eftir
Landsmót.
Skagfirðingar hafa orðið varir við mikinn áhuga á þessu móti og það verða örugglega margar hestafjölskyldur
sem eyða Verslunarmannahelginni í Skagafirði á komandi sumri.