Stefnt á að sýna Ronju ræningjadóttur í haust
Leikfélag Sauðárkróks stefnir á að setja upp leikritið um Ronju ræningjadóttur í haust en fyrsti fundur vegna verkefnisins verður haldinn í Leikborg á morgun fimmtudag. Í tilkynningu frá félaginu segir að óskað sé eftir fólki til að leika og starfa við sýninguna því ýmis verkefni þarf að manna og leysa. Leikstjóri verður Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir.
„Við biðjum alla þá sem ætla að vera með innan sviðs sem utan að mæta á fundinn eða láta vita fyrir fundinn svo við vitum hvort við náum að manna allar stöður,“ segir Sigurlaugu Dóra Ingimundardóttir, formaður LS. Ef einhverjar spurningar kunna að koma upp varðandi þetta eða viðkomandi kemst ekki á fyrsta fund er hægt að hafa samband formanninn í síma 8625771 fyrir fund. Aldurstakmark miðast við 10. bekk og eldri.
Ronja ræningjadóttir er aðalpersóna samnefndrar barnabókar eftir sænska rithöfundinn Astrid Lindgren en bókin kom fyrst út árið 1981. Sagan hefur verið þýdd á fjölmörg tungumál og bæði verið sett á svið víða um heim og kvikmynduð.
Ronja ræningjadóttir er barnaleikrit með söngvum og fjallar um dóttur ræningjaforingjans Mattíasar og hvað gerist þegar hún tekur upp á því að vingast við son erkióvinar hans. Matthías er foringi ræningjaflokks og væntir þess að Ronja verði leiðtogi flokksins þegar fram líða stundir. Í skóginum er kastali sem splundrast hefur í tvennt og búa þau feðgin í öðrum helmingi hans ásamt ræningjaflokki Matthíasar. Í hinum helmingnum býr ræningjaflokkur undir forystu Borka nokkurs og ríkja mikil illindi á milli flokkanna tveggja.
Borki á son að nafni Birkir og er hann fyrsta barnið sem Ronja hittir. Stuttu eftir að þau hittast fyrst bjargar Ronja honum úr háska og þau verða góðir vinir í kjölfarið en gæta þess að halda vináttu sinni leyndri. Seinna hlaupast þau á brott frá feðrum sínum, búa í helli og upplifa ýmis ævintýri. Að lokum sameinast fjölskyldurnar og sjá eftir óheiðarleika sínum og sögunni lýkur með því að Ronja og Birkir ákveða að ræningjalífið sé ekki það líf sem þau vilja lifa.