Stefnt að því að úthluta 30 lóðum í Varmahlíð

„Þær lausu lóðir sem við höfum haft til umráða, það hefur verið slegist um þær og það er aukinn áhugi á að byggja í Varmahlíð og við viljum gjarnan mæta þessari eftirspurn með því að fjölga lóðum,“ er haft eftir Sigfúsi Inga Sigfússyni, sveitarstjóra Svf. Skagafjarðar í frétt á Rúv.is um síðustu mánaðamót.
Reiknað er með að boðið verði upp á um 30 nýjar lóðir sem hægt verði að byggja á á næstu árum en stefnt er að því að úthluta nokkrum lóðum strax nú í haust. Sigfús Ingi segist ekki eiga von á að allar lóðirnar seljist á einu bretti en sveitarfélagið vilji vera í stakk búið til að mæta aukinni eftirspurn.
Þá hefur Rúv.is eftir sveitarstjóra að áhugi á því að búa í Varmahlíð ætti ekki að koma á óvart; staðurinn sé vel í sveit settur og samgöngur góðar. „Þetta er góður þéttbýlisstaður með mikilli þjónustu og svo er stutt í atvinnu bæði þar á staðnum og víðar í firðinum.“
Sigfús Ingi tjáði Feyki að nýjar lóðir í Varmahlíð séu fyrirhugaðar við Birkimel, suður og vestur af núverandi götu. „Deiliskipulag þessa svæðis er í vinnslu núna og tekur vonandi gildi í haust.“