Steinar lagðir við höfuð- og fótenda grafa í Hegranesinu

43 grafir hafa fundist hingað til/Mynd: BG
43 grafir hafa fundist hingað til/Mynd: BG

Gripirnir sem fundust á dögunum í fornum kirkjugarði í Keflavík, Hegranesi eru ekki það eina í uppgreftrinum sem þykir fréttnæmt. Þar hefur einnig komið í ljós að steinar hafi verið lagðir við bæði höfuð- og fótenda grafa á yfirborði. Þá voru steinar aukreitis lagðir í grafirnar, ofan á kisturnar og þá sem í þeim voru.

Segir Guðný Zoëga, mannabeinafræðingur og deildarstjóri fornleifadeildar Byggðarsafns Skagfirðinga, í samtali við blaðamann Feykis, að þetta sé eitthvað sem hún hafi ekki séð áður og því um merkilega uppgötvun að ræða. Kirkjugarðurinn var tekinn í notkun um árið 1000 eftir Krist.

Í kirkjugarðinum hafa fundist 43 grafir og stæðileg kirkja en þar hafa sérfræðingar frá Íslandi og Bandaríkjunum grafið í sumar en nýlega lauk þeirri vinnu fyrir þetta árið. Snúa sérfræðingarnir aftur næsta sumar. Þá hefur um 20 manna hópur Bandaríkjamanna farið um Hegranesið í þeim tilgangi að gera prufuholur á hugsanlegum uppgreftrarstöðum.

Fleiri fréttir