Stéttarfélög bjóða á námskeið
Í nýjum námsvísi Farskólans kemur fram að ýmis stéttarfélög bjóða félagsmönnum sínum á námskeið. Þannig bjóða Stéttarfélögin Kjölur, Samstaða og SFR félagsmönnum sínum á þrjú námskeið. Þar er um að ræða skrautskriftarnámskeið, ræktun kryddjurta og ræktun matjurta.
Ýmis önnur stéttarfélög styrkja líka sína félagsmenn á myndarlegan hátt. „Við eigum í góðu samstarfi við stéttarfélögin og náum oft að halda námskeið vegna þessa. Við hvetjum okkar nemendur ávallt til að kanna rétt sinn hjá stéttarfélögunum,“ segir Halldór Gunnlaugsson, verkefnastjóri hjá Farskólanum.
Nýjan námsvísi Farskólans má skoða hér.