Stjarnan hafði betur
Stjarnan hafði betur gegn Tindastóli í æfingaleik í Síkinu í gærkvöldi, 94-110. Stólarnir löfðu undir lungann úr leiknum og hefðu þurft að girða sig í vörninni en stigahæstir fyrir Tindastól í leiknum voru þeir Taowo Badmus með 23 stig og Ivan Gavrilovic var honum næstur með 18 stig. Fyrir Íslandsmeistara Stjörnunnar var stigahæstur Orri Gunnarsson með 25 stig og Luka Gasic bætti við 23 stigum.
Skráðu þig inn til að lesa
Þú getur valið um þrjár áskriftarleiðir:
Leið 1 (blað og rafrænn aðgangur)
Færð blaðið inn um lúguna í hverri viku, rafrænan aðgang að pdf útgáfunni og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 3.495 kr. á mánuði m/vsk (3.149 án/vsk)
Það eru alltaf fjögur blöð í mánaðaráskriftinni.
Leið 2 (rafrænn aðgangur að pdf útgáfu blaðsins)
Færð rafrænan aðgang að pdf útgáfunni að Feyki og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 2.495 kr. á mánuði m/vsk. (2.248 kr. án/vsk).
Leið 3 (rafrænn aðgangur í viku)
Færð rafrænan aðgang að nýjasta tbl. Feykis og læstum fréttum í viku inn á feykir.is.
Kostar 695 kr. vikan m/vsk. (626 kr. án/vsk).
Fleiri fréttir
-
Á sama tíma að ári | Eva Guðbjartsdóttir skrifar
Leikfélag Sauðárkróks frumsýndi á föstudaginn síðastliðinn leikritið Á sama tíma að ári eftir Berndard Slade, í leikstjórn Ingrid Jónsdóttur. Verkið er sett upp í tengslum við Sæluvikuna eins og leikfélagið er vant að gera. Sýningin var einstaklega vel upp sett og hef ég sjaldan setið í leikhúsi þar sem jafn mikið er hlegið. Leikritið er hlýlegt og tekst að fanga á einstaklega mannlegan hátt hvernig tíminn mótar sambönd og sjálfsmynd. Leikmyndin var einföld en áhrifarík og skilaðu sínu.Meira -
Tímar og tækifæri í Skagafirði | Högni Elfar Gylfason skrifar
Skagfirðingar þekkja öðrum fremur hversu mikil lífsgæði felast í því að búa hér. Hér er öflugt atvinnulíf, landbúnaður, sjávarútvegur og samheldið samfélag sem stendur saman á raunarstund. Samfélag sem slíkt er ekki sjálfsagt heldur ávöxtur samheldni og vináttu íbúanna. En það er líka staðreynd að alltaf má gott bæta. Undanfarin ár hefur ýmislegt setið á hakanum. Innviðir hafa víða látið á sjá. Framkvæmdir hafa ekki alltaf fengið nægilegan undirbúning, í sumum tilfellum hefur vantað bæði skýra forgangsröðun og samráð við íbúa, þar má gera betur. Miðflokkurinn vill leggja þar hönd á vogarskálarnar.Meira -
Helga og Sigurður Bjarni fengu afhent starfsmerki UMFÍ
Ársþing Ungmennasambands Skagafjarðar var haldið 20. apríl nk. kl. 17:00 í Húsi frítímans við Sæmundargötu Sauðárkróki en þetta var 106. ársþing UMSS. Á þinginu fengu þau Helga Daníelsdóttir og Sigurður Bjarni Rafnsson afhent starfsmerki UMFÍ en þau hafa bæði unnið mikið og gott starf fyrir skíðadeild Tindastóls.Meira -
„Það var enginn kirkjukuldi í Ketukirkju“
Það bar við í Sæluviku að Eyþór skáld Árnason frá Uppsölum í Blönduhlíð, en búsettur í höfuðborginni, stóð fyrir svokallaðri Ljóðavísitasíu. Hann heimsótti átta kirkjur í Skagafirði á fimm dögum og las upp úr ljóðabókum sínum og greip jafnvel í gítar. Hann sagði Feyki að túrinn hefði gengið alveg ljómandi vel. „Allavega skemmti ég mér mjög vel, kom í margar kirkjur sem ég hef aldrei komið í áður.“Meira -
Körfuboltavöllurinn í Hlíðarhverfi tekinn í gegn
Hafnar eru framkvæmdir við lagfæringar á körfuboltavellinum í Hlíðarhverfi á Króknum. Það má sjá myndir frá framkvæmdum á Facebook-síðu Þ. Hansen sem annast verkið. Feykir spurði Gunnar Pál Ólafsson, verkstjóra Þjónustumiðstöðvar á veitu- og framkvæmdasviði hjá sveitarfélaginu Skagafirði, hvað standi til.Meira
