Ströggl á Stólunum en gott stig í hús gegn Fjallabyggð
Það er ströggl á Stólunum í 2. deild karla í knattspyrnu. Strákunum hefur verið fyrirmunað að vinna leiki síðustu vikurnar og er liðið því með falldrauginn nartandi í hælana á sér. Í gærkvöldi náðust þó ágæt úrslit á Ólafsfjarðarvelli þegar leikið var við grannana í Fjallabyggð. Lokatölur urðu 2-2.
Það var Benjamín Gunnlaugarson sem kom Stólunum yfir strax á 9. mínútu en Alexander Þorláksson jafnaði leikinn um miðjan fyrri hálfleik og kom heimamönnum síðan yfir rétt fyrir hlé. Stólarnir máttu alls ekki við því að tapa leiknum, enda var liðið í fallsæti fyrir umferðina, og það var því kærkomið þegar Ben Griffiths jafnaði leikinn á 84. mínútu og þar við sat.
Um síðustu helgi spilaði lið Tindastól við Ægi í Þorlákshöfn en liðin voru bæði með 17 stig fyrir umferðina og voru í 10.–11. sæti. Tindastóll var – og er – með mun slakari markatölu en Ægir, sat því í fallsætinu, og mikilvægt að ná sigri. Haukur Eyþórsson kom Tindastólsmönnum yfir á 31. mínútu en William Daniels jafnaði fyrir Ægi á 44. mínútu. Fleiri mörk voru ekki gerð í leiknum og lokatölur 1-1.
Með stiginu í gær á Ólafsfirði náðu Stólarnir að klóra sig upp fyrir lið Ægis og eru í 10. sæti deildarinnar með 19 stig líkt og Njarðvík, en Suðurnesjamenn eru með heldur skárri markatölu. Sindri og KF eru rétt fyrir ofan og fallslagurinn því kominn á fullt. Þrjár umferðir eru nú eftir og er næsti leikur Tindastóls hér heima gegn Hetti á laugardaginn kl. 14:00.Áfram Tindastóll!