Styrktarreikningur opnaður fyrir unga fjölskyldu

Tvíburarnir ungu
Tvíburarnir ungu

Þann 14. júlí síðastliðinn eignuðust þau Hjálmar Björn Guðmundsson og Ingibjörg Signý Aadnegard á Blönduósi yndislegar tvíburastelpur. Fljótlega kom í ljós að önnur þeirra er með hjartagalla og þurfti hún að fara nokkurra daga gömul með pabba sínum og föðurömmu til Lundar í Svíþjóð. Hún fór í aðgerð 2. ágúst og gekk hún vel en sama dag flugu mamma hennar, tvíburasystir, Guðjón stóri bróðir þeirra og móðuramma til Svíþjóðar.

Þegar fólk stendur fyrir áskorunum af þessari stærðargráðu er um margt að hugsa og nóg til að hafa áhyggjur af. Eitt af því eru auðvitað fjárhagsáhyggjur enda er þetta kostnaðarsamt ferli fyrir ungu fjölskylduna. Til að létta undir með Hjálmari og Signýju hafa nokkrir vinir og ættingjar ákveðið að stofna styrktarreikning á nafni Önnu M. Sigurðardóttur frænku Signýjar; 0307-13-110619 kt. 220684-3349. Söfnunin stendur til 5. september en þá mun innistæða reikningsins verða afhent fjölskyldunni.


Fleiri fréttir