Sundlaugar loka vegna viðhalds
feykir.is
Skagafjörður, Uncategorized
17.05.2013
kl. 15.49
Framundan er viðhald á tveimur sundlaugum í Skagafirði, sundlauginni á Sauðárkróki og sundlauginni á Hofsósi. Þær verða því báðar lokaðar vegna viðhalds dagana frá mánudeginum 27. til miðvikudagsins 29. maí og opna síðan samkvæmt áður auglýstum opnunartíma fimmtudaginn 30. maí.
Fleiri fréttir
-
Guðrún og Magnús tóku þátt í Vasa-göngunni enn og aftur
Íþróttagarpar eru á öllum aldri. Þannig fékk Feykir ábendingu um það nýverið að hjón á áttræðisaldri sem byggju í Fljótunum væru að keppa í Vasa-göngunni sænsku sem er mikil þolraun og að sjálfsögðu er gengið á skíðum. Um er að ræða þau Magnús Eiríksson og Guðrúnu Pálsdóttur sem búa á Reykjarhóli á Bökkum í Fljótum. Feykir sendi Guðrúnu strax skilaboð og var komist að samkomulagi um að heyrast betur að keppni lokinni, nokkrum dögum síðar.Meira -
Engin kosning um menningarhús á Sauðárkróki
Umræða um menningarhús á Sauðárkróki hefur náð að valda titringi hjá rólegasta fólki síðustu vikur og ekki allir á eitt sáttir. Byggðalistinn lagðifram tillögu um íbúakosningu sem tekin var til umfjöllunar á fundi sveitasrstjórnar þann 25. febrúar sl. en var felld með fimm atkvæðum meirihlutans. Nú á miðvikudag tók síðan sveitarstjórn fyrir tillögu frá þremur íbúum sem laut að ósk um atkvæðagreiðslu um ákvörðun um byggingu menningarhúss og samninga við ríkið þar um. Fram kemur í tilkynningunni að óskað sé atkvæðagreiðslu um frestun byggingar menningarhúss á Sauðárkróki og endurupptöku á samningi við ríkið vegna þess. Sú tillaga var einnig felld af meirihluta sveitarstjórnar.Meira -
Í fyrsta sinn á Íslandi
feykir.is Vestur-Húnavatnssýsla, Listir og menning, Lokað efni 28.03.2026 kl. 09.00 gunnhildur@feykir.isLeikflokkur Húnaþings vestra frumsýnir gamansöngleikinn Addams fjölskyldan núna um páskana og er þetta í fyrsta skipti sem söngleikurinn er sýndur á Íslandi. Leikstjóri og þýðandi söngleiksins er Sigurður Líndal sem er lesendum mörgum kunnur og danshöfundur sýningarinnar er Benjamin Di'Ath. Æfingar hafa gengið vel og er þetta fjórði söngleikurinn sem Leikflokkur Húnaþings vestra setur upp og ekkert slakað á í framsetningu nú frekar en fyrri ár.Meira -
Ekkert ferðaveður!
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 27.03.2026 kl. 20.34 oli@feykir.isUm miðjan dag í dag versnaði veðrið til mikilla muna á Norðurlandi vestra og samkvæmt upplýsingum Lögreglunnar á Norðurlandi vestra er nú ófært frá sunnanverðri Holtavörðuheiði að Varmahlíð. Ófært er bæði um Vatnsskarð og Þverárfjall. Þá er ýmist óveður eða stórhríð um allt umdæmið.Meira -
Aukin verðmætasköpun - aukin velferð | Magnús Barðdal skrifar
Sveitarstjórnarkosningar eru spennandi tímamót þar sem íbúar fá tækifæri til að horfa fram á veginn og móta framtíð samfélagsins. Í Skagafirði blasa við fjölmörg tækifæri og full ástæða er til að vera bjartsýn á komandi kjörtímabil.Meira
