Sunnan yfir sæinn breiða
feykir.is
Skagafjörður, Listir og menning
12.04.2015
kl. 12.09
Vortónleikar Skagfirska Kammerkórsins verða í Menningarhúsinu Miðgarði á sumardaginn fyrsta, 23. apríl, klukkan 20:30. Stjórnandi kórsins er Helga Rós Indriðadóttir.
Aðgangseyrir er 2.500 krónur og ekki er tekið við kortum. Boðið verður upp á kaffi og pönnukökur eftir tónleika.
Fleiri fréttir
-
Drangey djásn Skagafjarðar | Guðni Ágústsson skrifar
Drangey rís upp af miðjum Skagafirði þverhníft og fögur. Drangey gekk undir nafninu ,,Snemmbæra Skagfirðinga,” en þeir sóttu til hennar bæði egg og fugl á hverju vori. Ennfremur var verstöð þar og gerðir út bátar og róið til fugls og fiskjar. Í gamalli þjóðsögu segir að tvö nátttröll hafi verið á ferð með kú sína yfir fjörðinn þegar lýsti af degi. Urðu þau og kýrin þá að steini. Er Drangey kýrin og stendur kerling sunnan hennar. Karlinn var fyrir norðan eyna og féll í jarðskjálfta á þeim örlagadegi 11. september 1755.Meira -
Sundlaugargestir á Króknum ættu að kætast í byrjun júlí
Sumarið er tíminn sungu Bubbi og Rúnni Júl um árið. Margir taka sjálfsagt undir það og það má til sanns vegar færa að sumarið er tíminn fyrir framkvæmdir. Feykir forvitnaðist um það hjá Sigfúsi Ingi Sigfússyni, sveitarstjóra Skagafjarðar, hverjar væru helstu framkvæmdirnar sem sveitarfélagið stæði þessa dagana. Einnig var spurt út í opnun á nýjum hluta sundlaugar á Króknum og arftaka Lummudaga.Meira -
Vilt þú taka þátt í að skapa stemningu?
Í sumar er von á fjölmörgum skemmtiferðaskipum til Sauðárkróks og á Hofsós. Í tilkynningu á vef Skagafjarðar er sagt frá því að sveitarfélagið ætli í tilefni af því að hrinda af stað tilraunaverkefni sem hefur það markmið að skapa lifandi og eftirminnilega stemningu fyrir farþega skipanna þegar þeir stíga í land.Meira -
Listsýningin Vor Verk opnar um helgina í hAughúsi í Héraðsdal
Akademía skynjunarinnar opnar sýninguna Vor Verk í nýjum heimkynnum sínum, hAughúsi í Héraðsdal í Skagafirði, laugardaginn28. júní kl. 15:00. Þetta er umbreytt haughús sem nú þjónar sem listsalur og nýr heimavöllur Akademíu skynjunarinnar. Sýningin stendur til 10. ágúst en opið verður frá fimmtudegi til sunnudags frá kl. 13-18 á meðan á sýningunni stendur.Meira -
Rabarbarinn rís til virðingar á Blönduósi
Í fyrra var Rabarbarahátíð haldin í fyrsta skipti á Blönduósi og tókst framar vonum. Það var því ekki annað í stöðunni en að endurtaka leikinn. Hátíðin þetta sumarið fer fram laugardaginn 28. júní í gamla bænum á Blönduósi og hefst kl. 11:00. Feykir hafði samband við einn skipuleggjenda hátíðarinnar, Iðunni Vignisdóttur, sem hafði frá ýmsu spennandi að segja. Við hófum þó leik á að spyrja hverjir væru í forsvari fyrir hátíðinni í ár.Meira