Sveitadagar í Varmahlíðarskóla
Þessa vikuna standa yfir árlegir sveitadagar í Varmahlíðarskóla, en þá eyða nemendur skólans fjórum dögum heima við í sveitinni, eða hjá ættingjum og vinum. Þar takast þeir á við störf sem til falla og rétta hjálparhönd. Samhliða því vinna þeir verkefni sem þeir skila í skólann að vikunni liðinni.
Á heimasíðu skólans kemur fram að það sé einlægur vilji starfsfólksins að gera þetta verkefni eins vel úr garði og hægt er. Allir eru sammála um að það sé einstakt á landvísu og afar mikilvægt fyrir tengingu skólans við heimilin, heimahéraðið og menningu þess.
Varmahlíðarskóli hlaut foreldraverðlaun frá Heimili og skóla árið 2013 fyrir þetta verkefni.