SveitaSæla 2016 um helgina

Rúningur á SveitaSælu 2012.
Rúningur á SveitaSælu 2012.

Landbúnaðarsýningin og bændahátíðin SveitaSæla 2016 fer fram í Reiðhöllinni Svaðastöðum við Sauðárkrók næstkomandi helgi. Þar verður að vanda margt að skoða og upplifa. Sýningin verður opin frá 10-17:30 og er aðgangur ókeypis. Kvöldvaka hefst svo klukkan 19:30 um kvöldið. Veitingasala verður á staðnum allan daginn og skemmtiatriði fyrir alla fjölskylduna.

Þá verða ýmsar vörur til sölu á handverksmarkaðnum og fjölbreytt úrval fyrirtækja sem verður á staðnum til að kynna sína vöru.

Sýningin verður opnuð kl 10 en kl 11 fer vélnautið af stað, smalahundasýning hefst og fyrsta félagsmót Hestamannafélagsins Skagfirðings verður haldið á staðnum. Á hádegi mæta svo Solla Stirða og Íþróttaálfurinn á staðinn.

Formleg setning verður kl 13. Þar flytja ávörp Gunnar Bragi Sveinsson, landabúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, Svavar Halldórsson, framkvæmdastjóri Landssambands sauðfjárbænda og Gunnsteinn Björnsson, sveitarstjórnarmaður í Skagafirði. Þá verða flutt tónlistaratriði frá Gærunni, sem einnig verður haldin á Sauðárkróki þessa helgi.

Önnur dagskráratriði eru m.a. kálfasýning, hrútadómar, val á Skagafjarðarrakka eða tík SveitaSælunnar, og klaufskurður á kúm að hætti Guðmundar Hallgríms. Á kvöldvökunni verður m.a. boðið upp á söng og skemmtun að hætti heimamanna ásamt fleirum. Bændafitnessið verður á sínum staði og vélnautið verður í gangi. Þá mun Hlynur Ben skemmta á kvöldvökunni.

Opin bú á sunnudaginn

Á sunnudaginn verða svo opin bú í Skagafirði frá kl 10-15. Um er að ræða sauðfjárbúið Stóru-Akra 1 í Blönduhlíð, kúabúið Kúskerpi í Blönduhlíð, loðdýrabúið Syðra-Skörðugil og ferðaþjónustubúið Kringlumýri í Blönduhlíð, þar sem Sigurður Hansen verður með sögustund á Sturlungaslóð eins og honum einum er lagið. Þá munu búin Sölvanes, Stórhóll og Lýtingsstaðir bjóða heim í skemmtilegan fjölskylduratleik.

Í auglýsingu í Sjónhorninu í dag kemur fram að ennþá sé ráðrúm til að vera með í SveitaSælu 2016 og er þeim sem hafa áhuga bent á að hafa samband við Steinunni Gunnsteinsdóttur í síma 865 5146 eða á netfangið sveitasaela@svadastadir.is.

Fleiri fréttir