Þæfingsfærð með skafrenningi á Vatnsskarði
Suðvestan 15-23 m/s og él er á Ströndum og Norðurlandi vestra, en 10-15 á morgun. Hiti kringum frostmark. Nú rétt fyrir kl. 11 er hálka víða í Húnavatnssýslum og í Skagafirði, snjóþekja og stórhríð er á Öxnadalsheiði en þæfingsfærð með skafrenningi er á Vatnsskarði. Snjóþekja og éljagangur er einnig í Langadal.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag:
Gengur í austan- og norðaustan 10-18 m/s með snjókomu eða slyddu. Úrkomulítið norðvestantil. Dregur úr vindi og úrkomu um kvöldið. Hiti um frostmark.
Á föstudag:
Vaxandi norðaustanátt með snjókomu eða slyddu, 10-20 m/s um kvöldið, hvassast austantil. Hiti um frostmark við sjóinn, en vægt frost til landsins.
Á laugardag:
Hvöss norðan átt og snjókoma austantil, en hægari og úrkomulítið vestantil. Lægir og styttir upp um kvöldið. Kólnandi veður.
Á sunnudag:
Hægt vaxandi sunnan átt og hlýnar í veðri, 10-18 m/s um kvöldið og rigning eða slydda sunnan- og vestantil og hiti 0 til 5 stig, en annars úrkomulítið og vægt frost.
Á mánudag:
Útlit fyrir suðvestlæga átt. Él um landið vestanvert, en bjart eystra. Hiti um frostmark.