Þakplötur fuku af Steypustöð Skagafjarðar

Talsverðar skemmdir urðu á Sauðárkróki í storminum sem gekk yfir í gær og í nótt. Stór hluti af þakplötum fauk af Steypustöð Skagafjarðar. Ýmsar aðrar skemmdir urðu, einkum í nyrsta hluta bæjarins, að sögn Baldurs Inga Baldurssonar, formanns Skagfirðingasveitar.
Meðal annars fauk hestakerra, ljósastaur og fánastöng brotnuðu og ýmislegt smálegt fauk af stað og skemmdist eða olli skemmdum.
Björgunarsveitin Grettir á Hofsósi var kölluð út í gærkvöldi en ekki er vitað um meiriháttar skemmdir þar.