Þráinn í 7. sæti
http://www.youtube.com/watch?v=lLlF_INAp78
Þráinn Freyr Vigfússon sem keppti fyrir hönd Íslands í Bocuse d´Or matreiðslukepninni í Lyon í Frakklandi hafnaði í 7. sæti. Alls tóku 24 þjóðir þátt í keppninni sem fram fór dagana 25. – 26. janúar.
Það er óhætt að segja að Norðurlandaþjóðirnar hafi staðið sig vel en Danmörk, Svíþjóð og Noregur röðuðu sér í 3 efstu sætin.
- 1. sæti - Danmörk, Rasmus Kofoed
- 2. sæti - Svíðþjóð, Tommy Myllymaki
- 3. sæti - Noregur, Gunnar Hvarnes
- ...
- 7. sæti - Ísland, Þráinn Freyr Vigfússon
Meðfylgjandi er myndband frá keppnisdegi Þráins í gær en það er Króksarinn Stefán Friðrik Friðriksson sem mundar myndavélina.