Þriðja mót Skagfirsku mótaraðarinnar
Þriðja mót vetrarins í skagfirsku mótaröðinni verður haldið í Reiðhöllinni Svaðastöðum á Sauðárkróki miðvikudaginn 18. mars. Keppt verður í ungmennaflokki, fyrsta og öðrum flokki fullorðinna og keppt verður í fjórgangi í barna og unglingaflokki.
Keppt verður í T3 þar sem tveir eða fleiri knapar eru inn á í einu og er stjórnað af þul. Keppni hefst upp á þá hönd sem skráð er á ráslista.Keppti verður í T7 þar sem tveir eða fleiri knapar eru inn á í einu og er stjórnað af þul.
Keppni hefst kl. 18:30 á barnaflokki. Skráning er á netfangið svadastadir@svadastadir.is fyrir kl. 24:00 sunnudaginn 15. mars. Næstu mót verða 15. apríl og 29. apríl. Skagfirska mótaröðin er stigakeppni og fær stigahæsti knapinn í hverjum flokki verðlaun fyrir samanlagðan árangur á mótunum. Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Reiðhallarinnar sem og heimasíðum hestamannafélaganna í Skagafirði. Fisk Seafood er styrktaraðili mótsins.