Þrjú skagfirsk verkefni hlutu viðurkenningu Foreldraverðlauna Heimilis og skóla 2016

Foreldraverðlaun Heimilis og skóla voru afhent við hátíðalega athöfn í gær. Mynd: Heimili og skóli.
Foreldraverðlaun Heimilis og skóla voru afhent við hátíðalega athöfn í gær. Mynd: Heimili og skóli.

Foreldraverðlaun Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra voru afhent í 21. sinn í dag við hátíðlega athöfn í Safnahúsinu. Mennta- og menningarmálaráðherra, Illugi Gunnarsson afhenti verðlaunin. Þrjú skagfirsk verkefni voru meðal þeirra 24 sem hlutu gilda tilnefningu og þar með viðurkenningu frá samtökunum. Verkefnin eru Hlaupið til góðs sem er áheitahlaup í Varmahlíðarskóla, Vinaliðaverkefnið og Að vera 10. bekkingur sem eru bæði verkefni í Árskóla.

Móðurmál, samtök um tvítyngi, hlutu Foreldraverðlaun Heimilis og skóla 2016 fyrir móðurmálskennslu. Hvatningarverðlaun 2016 hlaut foreldrafélag leikskólans Lautar í Grindavík.

Dómnefnd 2016 var skipuð eftirfarandi aðilum:

Bryndís Jónsdóttir, formaður dómnefndar, stjórn Heimilis og skóla

Sveinbjörn Kristjánsson, Embætti landlæknis

Aðalheiður Steingrímsdóttir, Kennarasamband Íslands

Þóroddur Helgason, fræðslustjóri í Fjarðabyggð

Ragnheiður Bóasdóttir, mennta- og menningarmálaráðuneyti

Stefanía Sörheller, Reykjavíkurborg

Guðni R. Björnsson, Foreldrahús

 

 

Fleiri fréttir